Samantekt um þingmál

Pakkaferðir og samtengd ferðatilhögun

752. mál á 151. löggjafarþingi.
Ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra.

Markmið

Að einfalda fyrirkomulag tryggingakerfis fyrir pakkaferðir og draga úr kostnaði ferðaskrifstofa vegna tryggingarskyldu pakkaferða. Að efla neytendavernd.

Helstu breytingar og nýjungar

Lagt er til að komið verði á fót nýju tryggingakerfi fyrir pakkaferðir og samtengda ferðatilhögun í stað þess tryggingakerfis sem rekið hefur verið að mestu óbreytt um áratugaskeið. Hið nýja fyrirkomulag felur í sér stofnun sameiginlegs tryggingasjóðs sem tryggi endurgreiðslur til ferðamanna við ógjaldfærni eða gjaldþrot seljenda pakkaferða og samtengda ferðatilhagana.

Breytingar á lögum og tengd mál

Lög um pakkaferðir og samtengda ferðatilhögun, nr. 95/2018.
Lög um Ferðamálastofu, nr. 96/2018.

Kostnaður og tekjur

Ekki er gert ráð fyrir áhrifum á ríkissjóð.

Afgreiðsla

Samþykkt með minni háttar breytingum.

Aðrar upplýsingar

Framtíðarsýn og leiðarljós íslenskrar ferðaþjónustu til 2030. Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið.


Síðast breytt 16.06.2021. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Unnið af starfsfólki upplýsinga- og rannsóknaþjónustu Alþingis.

Um samantektir

Samantektir um þingmál hafa verið birtar á vef Alþingis síðan á 141. þingi (2012-2013). Markmiðið er að setja fram í stuttu máli greinargóðar upplýsingar um þingmál og að tengja í efni sem gæti skýrt það frekar.

Samantektir eru einkum unnar um stjórnarfrumvörp en upplýsingum um önnur mál er bætt við eftir þörfum. Fylgst er með máli frá því að það kemur fram á þinginu og upplýsingum bætt við eftir því sem fram vindur. Þær eru að mestu fengnar úr texta frumvarps og umsagna, en tengt er í efni á öðrum vefjum eftir því sem tilefni er til. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Umfjöllunin á að vera óhlutdræg en ekki er hægt að gera ráð fyrir að hún sé tæmandi. Samantektin er ekki hluti af þinglegri meðferð né formlegum skjölum þingmálsins.

Allar ábendingar og athugasemdir eru vel þegnar og má senda þær á netfangið rannsoknathjonusta@althingi.is.